Þjóðin stendur á öndinni yfir reiðiköstum Guðmundar Guðmundssonar þjálfara handboltalandsliðsins vegna Loga Geirssonar, álitsgjafa RÚV sem hefur verið nokkuð harðskeyttur í gagnrýni sinni á liðið og þjálfarann. Guðmundur hefur hingað til verið þekktur sem geðprýðismaður og óhagganlegur en nú virðist sem hann hafi farið á taugum. Álitsgjafinn Jakob Bjarnar Grétarsson er ómyrkur í máli á Facebook.
„Ég vil lýsa yfir 100% stuðningi við Loga Geirsson. Bjánalegar árásir GG þjálfara á hann alveg galnar. Áfram Logi, láttu þetta bull ekki hafa áhrif á þig. Haltu áfram að segja þína skoðun,“ skrifar hann. Fólk bíður þess spennt að Guðmundur taki enn og aftur upp hárblásarann …