Innan VG eru margir að hnykkla vöðvana fyrir komandi slag um sæti á listum fyrir þingkosningarnar í haust. Alþingismaðurinn Kolbeinn Óttarsson Proppé er einn þeirra sem óttast um stöðu sína í núverandi kjördæmi. Hann er þingmaður Reykvíkinga en metur farsælla að færa sig í Suðurkjördæmi þar sem hann átti frægan langafa, Gest á Hæli. Kolbeinn hefur verið sauðtryggur liðsmaður ríkisstjórnarinnar og þá Sjálfstæðisflokksins. Óhætt er að fullyrða að hann hafi í ljúfmennsku sinni ekki troðið neinum um tær. En vandinn sem mætir honum í Suðurkjördæmi er að þar þarf hann líklega að takast á við fjallabóndann grjótharða, Heiðu Guðnýju Ásgeirsdóttur, á Ljótárstöðum um fyrsta sætið. Heiða er goðsögn fyrir baráttu sína að umhverfismálum og hún mun örugglega verða stóriðjuöflunum óþægur ljár í þúfu …