Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf þína hjálp við að hafa uppi á tveimur mönnum sem tengjast máli sem er til rannsóknar.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan var að senda frá sér. „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af mönnunum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þótt myndin sé óskýr má ætla að einhverjir geti borið kennsl á mennina,“ segir í tilkynningunni.