- Auglýsing -
Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á skemmdum sem voru unnar á bifreið borgarstjóra og húsnæði Samfylkingarinnar á dögunum. Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Málið er litið mjög alvarlegum augum og hefur rannsókn þess verið í algjörum forgangi hjá embættinu.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.