Tónlistar- og leikkonan Jessica Simpson hefur varið undanförnum dögum á lúxussvítu á Cedars Sinai-spítalanum í Los Angeles. Sólarhringurinn á svítunni kostar um 470.000 krónur.
Jessica Simpson eignaðist sitt þriðja barn á þriðjudaginn, stúlku sem hefur fengið nafni Birdie. Eftir að stúlkan kom í heimin hefur Jessica og fjölskylda haft það náðugt á sérstakri fæðingarsvítu á Cedars Sinai-spítalanum í Los Angeles.
Dvölin þar kostar sitt en sólarhringurinn er á um 4.000 dollara sem gerir um 470 þúsund krónur.
Í svítunni eru nokkur rúm, notaleg aðstaða fyrir vini og fjölskyldu og tvö baðherbergi svo eitthvað sé nefnt. Þeir sem dvelja í svítunni fá fulla þjónustu og góðan mat er fram kemur í grein á Contactmusic.
Þá hafa leigjendur svítunnar einnig aðgang að snyrtistofu þar sem hægt er að fá handsnyrtingu og hárgreiðslu.
Meðfylgjandi er fyrsta myndin sem Jessica deildi af nýjasta fjölskyldumeðlimnum.