- Auglýsing -
Á morgun siglir frystitogarinn Júlíus Geirmundsson ÍS til hafs með Svein Arnarson, brottdæmdan skipstjóra, sem stýrimann. Mikill urgur er í áhöfninni, sem haldið var sumum hverjum veikum við vinnu, og hafa nokkrir sagt upp störfum. Athyglisvert er að enginn vilji er hjá útgerðinni til að vera í samráði við mannskapinn. Einar Valur Kristjánsson framkvæmdastjóri er af sumum talinn hafa att skipstjóranum út í það að halda sjó með veika áhöfn. Hann er í felum fyrir fjölmiðlum þessa dagana og svarar engum. Meira að segja málgagn helstu útgerðarmanna landdsins, Morgunblaðið, fær engin svör …