Stjórnendur verðlaunahátíðarinnar The Critics Choice Awards hafa tekið ákvörðun um að fylgja fordæmi stjórnenda Golden Globe og bjóða gestum hátíðarinnar upp á veganmat.
Critics Choice Awards fer fram á sunnudaginn í Santa Monica í Kaliforníu. Á matseðlinum verður mexíkóskur matur í aðalhlutverki en svo verður einnig boðið upp á hamborgara, allt á kjöts og annarra dýraafurða. Þessu er sagt frá á vef The Independent.
Joey Berlin, framkvæmdastjóri Critics Choice Awards segir að skipuleggjendur hafi tekið þessa ákvörðun út frá umhverfissjónarmiðum. Hann segist þá hlakka til að bjóða gestum upp á gómsætan mat sem er laus við allar dýraafurðir.