Hin 23 ára Michelle Carter var í dag látin laus úr fangelsi eftir tæplega eins árs fangelsisvist. Carter var látin laus fyrr vegna góðrar hegðunar er fram kemur í frétt CNN.
Í ágúst 2017 dæmdi dómari í Massachusetts Carter, þá 17 ára, í tveggja og hálfs árs fangelsi, þar af fimmtán mánuði óskilorðsbundið, fyrir aðild hennar að dauða Conrads Roy III. Carter og Roy voru par. Carter var fundin sek um manndráp af gáleysi en hún hafði margoft hvatt Roy til að svipta sig lífi í gegnum smáskilaboð.
Glímdi við þunglyndi
Roy hafði glímt við þunglyndi og rætt vanlíðan sína við Carter í gegnum síma og smáskilaboð. Þegar Roy sagði Carter frá sjálfsvígshugsunum sínum þá hvatti hún hann til að svipta sig lífi.
Roy svipti sig lífi þann 13. júlí árið 2014, þá 18 ára, eftir að hafa skrifast á við Carter og talað við hana í síma. Lík Roy fannst í bifreið hans á bílastæði við Kmart-verslun í Fairhaven í Massachusetts-ríki. Hann lést vegna kolsýringseitrunar.
Við rannsókn málsins kom í ljós að Roy hafði hikað og orðið hræddur þar sem hann sat í bílnum við Kmart-verslunina rétt áður en hann lést. Roy fór út úr bílnum og hringdi í Carter, hún sagði honum að setjast aftur upp í bílinn sem hann þá gerði.
Mál sem vekur upp spurningar