Breska ríkisútvarpið, BBC, ráðgerir að fækka um 450 störf á fréttasviði fyrir árslok 2022, með það fyrir augum að lækka rekstrarkostnað um 80 milljónir sterlingspunda á ári.
RÚV greinir frá þessu en þar kemur fram að haft sé eftir fréttastjóranum Fran Unsworth að áformaður niðurskurður kalli á ýmsar breytingar á BBC. Vegna tækniframfara eigi línuleg sjónvarpsdagskrá undir högg að sækja og af þeim sökum þurfi að breyta framsetningunni. Útvarpsrásin Radio five live og fréttatengdi þátturinn Newsnight á sjónvarpsrásinni BBC 2 munu helst verða fyrir niðurskurðinum, sem áætlað er að leiði af sér skertan fréttaflutning.
Þess má geta að um sex þúsund manns starfa á fréttasviði BBC. Af þeim starfa 1.700 utan Bretlands.