Sóttvarnalæknir telur nær útilokað að Wuhan-kórónaveiran berist ekki til Íslands. Embætti landlæknis er á haus við að undirbúa komu hennar. Verið er að dreifa hlífðarbúnaði til sjúkrastofnana og undirbúa leiðbeiningar fyrir almenning og heilbrigðisstarfsfólk, með það að markmiði að hefta útbreiðsluna. Stór fyrirtæki hafa verið hvött til að skipuleggja hvernig þau geta starfað áfram með skertan mannafla. 2,2% þeirra sem greinast hafa látist og engin bóluefni eru handan við hornið.
Í umfjöllun í Mannlífi í dag er fjallað um Wuhan-kórónaveiruna, einkenni hennar, útbreiðslu og fleira. Einnig er þar að finna samantekt um fyrri faraldra sem dreifðust út á heimsvísu.
Lestu meira í nýjasta tölublaði Mannlífs.