Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir sjötugri konu sem síðast sást til í nágrenni við heimili sitt við Fjarðarás í Árbænum um hádegisbil í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Í tilkynningu frá lögreglunni er konunni lýst með eftirfarandi hætti og allir þeir sem geta gefið upplýsingar beðnir um að hafa samband tafarlaust við lögreglu:
„Konan er með hvítt rúmlega axlarsítt hvítt hár og er u.þ.b. 173 sm á hæð. Konan kann að vera illa áttuð og óvíst hvort hún rati heim til sín. Hún er klædd í síða bláa kápu með hettu, svartar buxur og brúnleita skó. Þeir sem geta gefið upplýsingar um konuna eða ferðir hennar eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.“