Á rúmum tveimur árum hafa vörur í Nettó hækkað gífurlega. Mesta hækkunin á tímabilinu er rúm 43 prósent en örfáar vörur höfðu lækkað í verði á tímabilinu. Á sama tíma hafa vörur í Bónus hækkað um allt að fjórðung.
Mannlíf skoðaði verðmun á tveggja ára og tæplega þriggja mánaða tímabili, á matvöru. Að þessu sinni var skoðaður verðmunur hjá versluninni Nettó. Mesta hækkun á erlendri vöru reyndist vera 43,3 prósent, en á íslenskri vöru 30,2 prósent. Tvær íslenskar vörutegundir stóðu í stað og þrjár lækkuðu þar af tvær íslenskar.
Sjá einnig: Mikil verðhækkun í Bónus – VERÐKÖNNUN – Eggin hækkað um 25 prósent
Strimill vikunnar – Nettó
Við höldum áfram að skoða verðhækkanir í matvöruverslunum á milli ára. Í þetta sinn strimil frá Nettó. Strimillinn er dagsettur 21.desember 2018 og er tíminn sem skoðaður er, tvö ár og tæplega þrír mánuðir.
Hækkanir voru á bilinu 1,3 prósent upp í 43,3 prósent
Tvær vörutegundir stóðu í stað, humar án skeljar, 800 gramma poki og MS Camenbert 150 grömm. Þá lækkuðu þrjár vörur, forsoðnar kartöflur frá Þykkvabæ, lækkun um tæp fimm prósent, Príma hvítlauksduft lækkaði um 11 prósent og Duracell rafhlöður lækkuðu um rúmlega 15 prósent. Hækkanirnar á öðrum vörunum voru á bilinu 1,3 prósent upp í 43,3 prósent.
Mesta hækkunin var á Oscar humarkrafti 43,3 prósent
Mesta hækkunin var á Oscar humarkrafti eða 43,3 prósenta hækkun. Minnsta lækkunin var á Úrvals flatkökum eða 1,3 prósent. Íslenskar vörur hækkuðu á milli 1,3 prósent upp í 30,2 prósent. Erlendar vörur hækkuðu frá 5 prósentum upp í 43,3 prósent. Flestar þessar hækkanir verð að teljast umtalsverðar á tveimur árum og tæpum þrem mánuðum. Hér að neðan má sjá allar vörurnar sem skoðaðar voru samkvæmt strimlinum, sumum varð að sleppa því þær fundust ekki á síðu netverslunar Nettó.
Margar íslenskar vörur hækkuðu umtalsvert
Ora niðursoðnar gulrætur hækkuðu um 30,2 prósent, Sambó kúlu- súkk um 20 prósent og Íslenskt smjör, 250 grömm, um 18,2 prósent. Það vekur furðu að Camenbert osturinn frá MS hækkar ekki um krónu á meðan Höfðingi frá sama fyrirtæki hækkar um 16,3 prósent og villisveppaosturinn um 10 prósent. Ljóst er að matvöruverð á Íslandi hækkar á ógnarhraða og oft á torkennilegum forsendum. Mannlíf mun halda áfram að skoða verð hjá íslenskum matvöruverslunum í þágu neytenda.
Vara | 2018 | 2021 | Munur |
Humar hátíðarsúpa 850 ML | 1498 | 1729 | 13.4% |
Humar án skeljar 800 gr poki | 4998 | 4999 | 0.0% |
X-tra hvítlauksbrauð 2stk | 249 | 339 | 26.5% |
Berry safadrykkur bláber 1L | 299 | 379 | 21.1% |
MS nýmjólk 1L | 154 | 165 | 6.7% |
Toro sósa rósapipar | 189 | 199 | 5.0% |
MS höfðingi 150GR | 493 | 589 | 16.3% |
Náttúra sveppir box 250GR | 335 | 379 | 11.6% |
MS camenbert 150GR | 519 | 519 | 0.0% |
Vorlaukur | 205 | 269 | 23.8% |
Ora gulrætur smáar 400GR | 139 | 199 | 30.2% |
MS villisveppaostur 150GR | 359 | 399 | 10.0% |
Sambó kúlu-súkk 300GR | 359 | 449 | 20.0% |
Oscar humarkraftur fond 200 | 419 | 739 | 43.3% |
Tómatpurre 140GR | 109 | 119 | 8.4% |
Úrvals flatkökur | 152 | 154 | 1.3% |
ÞB forsoðnar kartöflur 1KG | 599 | 571 | -4.9% |
MS rjómi 1/2 L | 533 | 567 | 6.0% |
Príma hvítlauksduft 60G | 399 | 359 | -11.1% |
MS smjör 250GR | 269 | 329 | 18.2% |
Durac.plus.power C 2stk | 529 | 459 | -15.3% |
Samtals: | 12805 | 13910 | 7.9% |