Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, er best klæddi stjórnmálamaður landsins. Hann landaði sigri í harðri keppni og er sá best klæddasti að mati dómnefndar Mannlífs.
Sigurinn var samt naumur því fast á hæla honum komu þau Katrín Jakobsdóttir og Björn Leví með tvö atkvæði hvort.
Aðrir fengu sitt atkvæðið hver nema að einn meðlima dómstólsins var á því að enginn íslenskra stjórnmálamanna hefði fatasmekk af neinu viti.
Mannlífsdómstóllinn samanstendur af 10 ólíkum einstaklingum sem öll eiga það sameiginlegt að vera skondin og skemmtileg og síðast en ekki síðan en ekki síst, hafa skoðanir á hlutunum.
Hér má sjá svör dómstólsins og spurt er hvort lesendur séu sammála meðlimum dómstólsins?
Bjarni Ben, klassískur!
Dagur, klárlega Dagur.
Kata Jak, alltaf töff klædd.
Björn Leví pírati fyrir að vera á sokkaleistunum á Alþingi. Það er alveg óþolandi óþægilegt að vera í lokuðum skóm innandyra. Löngu tímabært að þingmenn frelsi tærnar, landi og þjóð til heilla.
Bjarni Ben í jakkafötum.
Þær Katrín Jakobsdóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Lilja Alfreðsdóttir eru mjög vel klæddir stjórnmálamenn. Þær eru smekklegar hver á sinn hátt því allar hafa sinn sérstaka stíl. Af körlunum eru engir sem skera sig úr. Þeir eru frekar einsleitur hópur. Það er af sem áður var þegar Óttarr Proppé og Sigmundur Ernir Rúnarsson lífguðu upp á þingsalinn.
Bjarni Ben.
Eyþór Arnalds.
Enginn er að standa sig varðandi tískusveiflur og mættu líta betur út fyrr landann.
Björn Leví, hann hefur stíl og er öðruvísi. Þorir að ganga á móti hefðum. Hefði samt viljað velja besta klædda jarðvísindamanninn. Peysurnar hreinlega loga á síðum prjónablaðanna. Nema Kristín.
Eftirfarandi einstaklingar sitja á pallborði Mannlífsdómstólsins:
Gassi Kling, DJ
Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður
Nanna Rögnvaldardóttir, matgæðingur og rithöfundur
Sigga Kling, lífskúnstner
Kolbrún Hafsteinsdóttir, framhaldsskólanemi
Birna Magnadóttir, upplýsingafulltrúi
Eva Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri,
Gógó Starr, dragdrottning
Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri
Jón Heiðar Ragnheiðarson, umhverfisvinur og markaðsmaður