Þrátt fyrir tilmæli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis um að fólk biði með að fara upp að gosstöðvunum í Geldingadal, var stanslaus straumur þangað í gær og langt fram á kvöld. Þegar mest lét í gær var bílaröðin um fimm kílómetrar við vegkant Suðurstrandavegar að sögn Lögreglunnar á Suðurnesjum.
Þórólfur biðlaði þessu til fólks vegna einstaklings sem þar var á ferð smitaður og vegna smithættu á svæðinu, meðal annars vegna sameiginlegra snertiflata og mögulegra hópmyndanna á leiðinni upp að og við gossvæðið.
Lögreglan á Suðurnesjum leitaði að konu sem varð viðskila gönguhóp sinn á tólfta tímanum í gærkvöldi á leið frá gosstöðvunum. Fannst konan á fimmta tímanum í nótt. RÚV greindi frá.
Nú í morgunsárið sást á vefmyndavélum að fólk var nú þegar mætt á gossvæðið, en ágætt veður er þar núna.
Veðurspáin er aftur á móti slæm og virðist sem ekkert útivistarveður verði síðdegis og á morgun.