- Auglýsing -
Það kom sem þruma úr heiðskýru lofti þegar kjarnakonan Tobba Marínós sneri baki við ritstjórastól DV og ákvað að einbeita sér að morgunkorni. Kvittur er uppi um að DV muni ekki koma út á pappír mikið lengur þar sem lestur þess er í sögulegri lægð. Hermt er að vilji standi til þess að blaðamaðurinn geðþekki, Ágúst Borgþór Sverrisson, taki við af Tobbu en hann mun ekki vera upprifinn yfir hugmyndinni. Ágúst Borgþór er á meðal reyndustu æsifréttamanna landsins og afar næmur á þá strauma samfélagsins. Glöggir félagar hans telja nær öruggt að hann myndi rokka í ritstjórastólnum …