Rólegt hefur verið við gosstöðvarnar í Geldingadal í morgun. „Rúturnar eru byrjaðar að koma en þær eru illa nýttar,“ segir Sigurður Bergmann, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum viðtali við mbl.is.
Opnað var inn á svæðið klukkan sex og voru þá um fimmtán bílar á bílastæðinu en hann er vettvangsstjóri á gosstöðvum. Hleypt verður inn á svæðið til klukkan 18 í kvöld, eins og síðustu daga, og byrjað að rýma klukkan 22.
Í gær fóru 480 manns upp að gosstöðvum miðað við 5.128 á föstudaginn langa. Gossvæðinu var lokað á laugardag vegna veðurs.
Veðrið í Geldingadal er bjart og fallegt en nístingskalt. Um tíu stiga frost var uppi á fjalli í morgun. „Það andar köldu úr norðanáttinni,“ segir Sigurður. Vind mun þó lægja á gosstöðvum í dag og spáð er hægri breytilega átt upp úr hádegi, björtu veðri og frosti um fimm stig.
Vakin er athygli á því á vef Veðurstofunnar að í hægum vindi geti gasmengun frá eldgosinu safnast fyrir nærri gosstöðvunum og náð þar háum styrk. Undir kvöld fer að hreyfa vind og um kl. 20 má búast við sunnan 8 m/s og líkur á snjókomu.