Brynjar Níelsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, gerði góða reisu til Spánar í tvær vikur, þvert á tilmæli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis sem vill að fólk haldi sig heima á landinu bláa og helst sem mest afsíðis. Það var fast skotið hjá Kára Stefánssyni í Kastljósi þegar hann uppnefndi Brynjar sem Trump og taldi það vera hið mesta glapræði að þvælast í útlöndum. Sigríður Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, greip til varna fyrir Brynjar og kallaði Kára „kjaftforan auðkýfing á áttræðisaldri“ sem vildi reisa múra. Einhver hefði haldið að Sjálfstæðisflokkurinn hefði mætur á auðkýfingum. Næsta útspil í málinu kemur væntanlega frá Brynjari sem er að jafna sig í nefinu eftir sársaukafulla sýnatöku en hann sagðist hafa verið „nánast rúmliggjandi af sársauka efst í nefi alveg við framheilann“. Hann boðar viðbrögð á næstunni …