Laugardagur 15. febrúar, 2025
1.8 C
Reykjavik

Brynjar hlær að Kára vegna Spánarferðarinnar: – „Heimsótti bróður sem hafði fengið heilablóðfall

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Þegar hrokinn er bara hluti af óstjórnlegu frekjukasti missir hann marks og allur sjarmi hverfur. Þess vegna tapaði Donald Trump kosningunum síðast,” segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í Facebook færslu um Spánarferðina og ummæli Kára Stefánssonar.

Brynjar fór til Spánar í tvær vikur, þvert á tilmæli sóttvarnarlæknis. Kári Stefánsson skaut fast á Brynjar fyrir útlandaþvælinginn í Kastljósi og hafa nokkrir félaga Brynjars innan Sjálfstæðisflokksins farið upp á afturfæturnar honum til varnar. Nánar má sjá í Orðrómi Mannlífs.

„Alla jafna hefur það ekki þótt fréttnæmt að ég fari til útlanda í stuttan tíma hvað þá að það verði aðalfrétt þegar ég kem til baka. Ég var ekki að koma frá tunglinu eftir frækilega göngu í gömlum sporum Armstrongs. Í sama flugi voru á þriðja hundrað Íslendinga, allt yndislegt fólk sem ég trúi að kjósi mig næst verði ég í framboði,” segir Brynjar.

„Þegar ég kom út af flugstöðinni í gærkvöldi og opnaði símann tók ég eftir því að Kári Steffensen hafði farið mikinn í Kastljóssþætti, sem þá var nýlokið. Má segja að Kári sé sérfræðingur í öllu, öðrum fremri, og þar fékk ég og þjóðin öll ókeypis fræðslu um sóttvarnir og ekki síður lögfræði. Hann er sérfræðingur að sunnan og býr sennilega alveg syðst á landinu.”

Brynjar segist hafa gaman að hrokafullum mönnum. „Dass af hroka getur stundum verið nauðsynlegt til að koma viti í umræðuna”.

Hann er aftur á móti minna hrifin af því sem hann kallar óstjórnlegt frekjukast Kára.

- Auglýsing -

„Rétt er að taka það fram að þessi utanferð mín var fjarri því að vera óþörf. Deila má um hvort hún hafi verið bráðnauðsynleg. Þannig stendur á að elsti bróðir minn, sem býr á Spáni ásamt konu sinni, fékk alvarlegt heilablóðfall fyrir tæpu ári síðan. Hugsunin var sú að við bræður hans kæmum ásamt eiginkonum til að létta undir með honum í smá tíma. Einnig að gefa honum kost á að eiga stund með bróður okkar, sem glímir við Alzheimer, áður en hugurinn hverfur alveg”.

Brynjar segir að sú heift og reiði í hans garð sem skynja hafi mátt hjá Kára í umræddum Kastljóssþætti sé augljóslega vegna gagnrýni hans á aðgerðir yfirvalda í tengslum við frelsissviptingar á sóttvarnahóteli. Brynjar telur aðgerðirnar hafa verið alltof víðtækar og auk þess augljóslega ólögmætar.

„Geri mér grein fyrir því að sjónarmið Kára hafa víðtækan hljómgrunn í samfélaginu og ætla má að stjórnmálamenn sem tali gegn þeim séu annað hvort fullkomnir fávitar eða að kveðja stjórnmálin“.

- Auglýsing -

Brynjar segir að ekki megi líðast að ganga lengra gegn réttindum fólks en nauðsynlegt er og lög heimila.

„Það er hins vegar hætt við að það vefjist ekki fyrir fólki að samþykkja slíkt þegar óttinn og hræðslan er alls ráðandi. Með aðgerðum sem skerða réttindi fólks meira en góðu hófi gegnir getum við nefnilega skaðað samfélagið meira en veiran sjálf.”

Hann segist ekki vera á móti sóttvarnaaðgerðum og hafa verið.

„Geri engar athugasemdir við að vera í sóttkví heima hjá eftir þessa ferð og uni því vel. Stjórnvöld hafa að mestu leyti staðið sig vel og gera það vonandi áfram. Einu áhyggjur mína í augnablikinu eru af því hvernig eiginkonunni muni reiða af eftir að hafa setið föst með mér í fimm daga,” skrifar Brynjar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -