Fram að hádegi í dag verða engir viðbragðsaðilar á gosstöðvunum. Fyrir þann tíma fer fólk alfarið á eigin ábyrgð. Búist er við því að gosmengun gæti farið yfir hættumörk við gosstöðvarnar og í byggð á vestanverðum Reykjaneskaga.
Fólk er hvatt til þess að fylgjast náið með loftgæðamælingurm í dag þar sem líkur eru á að loftgæði á Reykjanesskaga verði óholl fyrir þá sem viðkvæmir eru. Við gosstöðvarnar er búist við austa og suðaustan átta til þrettan metrum, lítils háttar slyddu eða rigingu við og við og hitinn verður á bilinu núll til fimm stig.