Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf þína hjálp við að hafa uppi á þessum manni. Allir þeir sem þekkja til hans eða vita hvar hann er að finna eru beðnir um að hafa tafarlaust samband.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni:
„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]
Þótt myndirnar séu óskýrar má ætla að þær geti gefið vísbendingar um hver maðurinn er.“