Stefán Rafn Sigurbjörnsson, áður fréttamaður á Stöð 2 en nú upplýsingafulltrúi Seðlabankans, segir að fjöldi ærslabelga á kjörseðlum í Hverfinu mínu veki grunsemd. Á Twitter birtir hann skjáskot sem sýnir að í svo gott sem öllum hverfum eru ærslabelgir á lista.
Stefán Rafn grínast á Twitter og segir: „Hvaða samsæri er í gangi hjá Ærslabelgur GlobalHolding Ltd. Corp ehf. að ná að koma ærslabelg fyrir á ofarlega öllum kjörseðlunum í kjörseðlunum í HverfidMitt“
Ærslabelgir eru nokkurs konar hoppukastalar en þá má finna víða um land allt. Á heimasíðunni belgir.eggald.in má finna gagnvirkt kort sem sýnir alla ærslabelgi landsins. Samkvæmt henni eru þeir minnst 11 á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir gætu þó tvöfaldast ef kjósendur vilja ærslabelg í öll hverfi. Einn maður mun græða mest á því, fyrir utan börnin. Það er Einar Karlsson, stundum kallaður Einar belgur, en hann ber ábyrgð á öllum þessum ærslabelgum. Hann sá ærslabelg fyrst í Danmörku og kolféll fyrir þeim. Síðan þá hefur hann setti upp ríflega hundrað tæki.
Hvaða samsæri er í gangi hjá Ærslabelgur GlobalHolding Ltd. Corp ehf. að ná að koma ærslabelg fyrir á ofarlega öllum kjörseðlunum í @HverfidMitt? pic.twitter.com/B2IAjmVlOg
— Stefán Rafn (@StefanRafn) April 23, 2021