- Auglýsing -
Starfsmaður á leikskólanum Sólborg í Sandgerði hefur verið rekinn en hann er sagður hafa beitt barn í skólanum ofbeldi.
Málið var kært til lögreglu þar sem rannsókn er langt komin. Lögregla segir að stutt sé í niðurstöðu hennar.
RÚV greinir frá þessu. Sólborg er einn af leikskólum Hjallastefnunnar en enginn þar vildi tjá sig við RÚV.
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum staðfesti þó að málið sé til rannsóknar.