Í aðdraganda kosninganna er mest áberandi að gömlum og grónum þingmönnum er hafnað, þvert á flokka. Sumir sjá sjálfir sinn vitjunartíma eins og Páll Magnússon, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem lagði upp laupana af ótta við kjörísdrottninguna, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, sem skoraði hann á hólm. Páll lýsti sjálfur yfir endalokum ferils síns. Síðast féll Lilja Rafney Magnúsdóttir, leiðtogi VG í Norðvesturkjördæmi sem tapaði fyrir Bjarna Jónssyni fiskifræðingi. Mikil spenna er hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjavík þar sem Sigríður Andersen, fallinn dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, leiðir öðrum megin en Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í hinu kjördæminu. Víst er að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra stefnir hátt og vill verða leiðtogi. Líklegt er að það gangi eftir á kostnað Sigríðar. Óljósara er með Guðlaug Þór sem á ekki upp á pallborðið hjá Bjarna Benediktssyni formanni en virðist eiga níu pólitísk líf þrátt fyrir að vera svolítið eins og götustrákur í drengjakór. Hann gæti staðið með fálkann í höndunum þegar slagnum linnir …