Sigríður Dögg Auðunsdóttir, nýkjörinn formaður Blaðamannafélags Íslands, átti stórleik á fyrstu dögum í embætti sínu þegar húyn snupraði eigendur Árvakurs fyrir liðsinni Morgunblaðsins í aðför Samherja að Helga Seljan, fréttamanni Ríkisútvarpsins. Sigríður Dögg og stjórn Blaðamannafélagsins fordæmdu aðförina og fóru fram á fund með eigendum Árvakurs. Samstaðan með Helga og hinum ofsóttu á RÚV var algjör Viðbrögðin í höfuðstöðvum Moggans í Hádegismóum létu ekki á sér standa. Guðni Einarsson trúnaðarmaður félagsins hjá Árvakri sagði af sér embættinu og annar trúnaðarmaður, Kristín Heiða Kristinsdóttir, fylgdi í kjölfarið og sagði af sér. Hugsanlegt er að þrælsótti ráði för hjá tvíeykinu fremur en samstaða með auðkonunni Guðbjörgu Matthíasdóttur og öðrum eigendum Moggans eða aðdáun á því rómaða fyrirtæki, Samherja, sem grunað er um lögbrot í Namibíu, Færeyjum og víðar …