Litli hafnfirski drengurinn sem lést í síðustu viku, hinn fjögurra ára gamli Jökull Frosti Sæberg, verður jarðsunginn á föstudaginn. Stofnaður hefur verið söfnunarreikningur fyrir fjölskylduna sem finna má hér neðar.
Jökull Frosti slasaðist alvarlega á leið sinni heim úr leikskólanum sínum miðvikudaginn 21. apríl síðastliðinn. Eftir aðhlynningu á Landspítalanum lést litli drengurinn að morgni mánudagsins 26. apríl. Áfallateymi voru virkjuð.
Útför Jökuls Frosta fer fram frá Hafnarfjaðarkirkju á föstudaginn klukkan 11 en birt var tilkynning þess efnis í Morgunblaðinu í dag. Streymt verður frá útförinni og ef þú vilt hjálpa fjölskyldunni á erfiðum tímum þá er búið er að stofna eftirfarandi styrktarreikning í nafni bróður hans:
0123-15-027964
Kennitala: 141114-2040.