Harka er að færast í kosningabaráttuna. Þingmenn Vinstri grænna eiga undir högg að sækja vegna meintrar þjónkunnar sinnar við auðvaldið í landinu. Félagsskapurinn Fólkið í landinu stendur fyrir auglýsingaherferð þar sem þingmenn VG eru myndbirtir og sagt að þeir ætli að selja Íslandsbanka. Kolbeinn Óttarsson Proppé, sem brotlenti framboði sínu í Suðurkjördæmi, er einn þeirra sem sagður er vilja selja bankann. Hann kallar herferðina blygðunarlausa tilraun til að hafa áhrif á val fulltrúa í stjórnmálaflokki. Sjálfur hefur Kolbeinn lagt upp í nýjan leiðangur og biður nú um stuðning til að fara á þing fyrir Reykvíkinga en þar er ekki á vísan að róa …