„Það sem fólk er kannski ekki alltaf að átta sig á er að þegar að meintir gerendur fara fyrirfram í viðtöl og lýsa sig saklausa eru þeir jafnframt að lýsa yfir að þolandinn sé lygari. Og þegar fólk tekur sterka stöðu með mönnum sem koma fram með sína útgáfu af hlutunum er það einnig að taka afstöðu gegn þolendum,” segir Gabríela Bryndís Erludóttir hjá samtökunum Líf án ofbeldis, í kvöldviðtali Mannlífs.
Gabríela er harðorð og segir gerendameðvirknina í samfélaginu vera umfangsmikið og afar slæmt vandamál. „Við erum að sjá mjög skýrt hvernig þetta er síendurtekið gegn konum og börnum og verðum vitni að hvernig hlutunum er stillt upp í fyrirsögnum blaðanna. Þegar karlmenn lýsa yfir sakleysi sínu er því tekið sem staðreynd á meðan að mun meiri fyrirvari er settur á lýsingar þolenda á sinni reynslu.”
Viðtalið má lesa í heild sinni hér.