Íbúar í Grímsey, sem eru á bilinu 30-40 talsins, þurfa sjálfir að kosta til tugum þúsunda króna til að fá sprautu með bóluefni gegn kórónuveirunni. Það kostar um 40 þúsund að taka ferjuna til Akureyrar og síðan þurfa íbúarnir að greiða fyrir gistingu og uppihald. Þá fylgir ferðinni tveggja daga vinnutapþ
Frá þessu greinir Morgunblaðið sem ræðir við Önnu Maríu Sigvaldadóttur, íbúa í Grímsey. Henni hefði fundist eðlilegra að komið yrði með sprauturnar út í eyjuna.
„Við þurfum að taka okkur tveggja daga frí til að fara í bólusetningu sem tekur kortér. Auðvitað finnst manni þetta pínu fúlt. Ég hefði haldið að það væri hægt að gera þetta öðruvísi enda er þetta ekki stór staður“