Fimmtudagur 6. febrúar, 2025
5.8 C
Reykjavik

Hrækti á lögreglumenn og kastaði hraðsuðukatli -10 mánaða fangelsi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Baldur Kolbeinsson var síðastliðinn miðvikudag sakfelldur fyrir Héraðsdómi Suðurlands fyrir nokkur brot. Hann var meðal annars ákærður fyrir að hafa kastað hraðsuðukatli í fjóra fangaverði á Litla-Hrauni.

Atvik þetta var með þeim afleiðingum að einn fangavarðanna fékk ketilinn í höfuðið og hlaut hann meiðsli af. Baldur var enn fremur sakaður um hótanir um líkamsmeiðingar við lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurlands og að hafa hrækt á fangaverði og lögreglumenn. Var hann dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir þessi afbrot og til að greiða sakarkostnað upp á 320.000 krónur.

Baldur er síbrotamaður og hefur setið meira og minna í fangelsi frá 17 ára aldri. Árið 2018 var hann sakfelldur fyrir að hafa lúbarið hælisleitanda á Litla-Hrauni í félagi við annan mann. Einnig hefur hann verið dæmdur fyrir að maka saur í munn samfanga og bíta stykki úr vör manns. Það var virt Baldri til refsilækkunar að meðferðin á máli hans hefur dregist mjög lengi en afbrotin voru framin í desember árið 2019.

Í dómnum segir að mikil breyting hafi orðið á högum Baldurs og má skilja það svo að hann hafi bætt ráð sitt. Ekki er þó greint nánar frá því.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -