Gísli Marteinn Baldursson, sá geðþekki sjónvarpsmaður allra landsmanna, gerði allt brjálað í Eurovisonútsendingunni í gær frá Rotterdam þegar hann gaf Ísaraelsmönnum pillu vegna ofbeldis þeirra. „Öfugt við það sem margir eflaust telja, þá fjallar lag hennar: Set me free, ekki um þá Palestínumenn sem eru fangar í eigin landi við landtökubyggðir Ísraela, heldur er þetta klassískt ástarlag,“ sagði Gísli um lag Ísraels.
Miðflokkurinn leikur á reiðiskjálfi vegna ummælanna og hefur Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokksins, sagt þetta vera pólitískan áróður. Raddir um að leggja beri niður Ríkisútvarpið og koma Helga Seljan á kaldan klaka óma nú sem aldrei fyrr. Gísli Marteinn er nú kominn á dauðalista haturfólksins líka. Fyrst réðust þeir á Samherja en svo á Ísrael. Þetta gengur auðvitað ekki ….