Boðað brotthvarf Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Miðflokksins, hefur vakið nokkra athygli en þó ekki undrun. Gunnar Bragi er einn þeirra þingmanna sem sýndi af sér óviðundandi framkomu á Klausturbarnum þegar hann þvældi ofurölvi og beraði kvenfyrirlitningu sína. Allt þetta lenti á upptöku hjá Báru sem sat á næsta borði. Gunnar Bragi var á sínum tíma í náðinni hjá Þórólfi Gíslasyni, kaupfelagsstjóra í Skagafirði. Eftir að Gunnar Bragi yfirgaf Framsóknarflokkinn og fylgdi Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Miðflokkinn slitnaði sú taug. Bakland Gunnars Braga er í dag brostið og hann átti því litla möguleika á endurkjöri og hrökklast því á brott …