- Auglýsing -
Lítil flugvél nauðlenti nærri Keflavíkurflugvelli snemma í morgun. Flugmanni vélarinnar varð ekki meint af og lögregla rannsakar nú tildrög nauðlendingarinnar.
Þetta kemur fram í nýlegri tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum:
„Snemma í morgun barst okkur tilkynning um nauðlendingu lítillar flugvèlar suðvestur af Keflavíkurflugvelli. Flugmaðurinn er óslasaður og unnið er að rannsókn málsins,“ segir í tilkynningunni.