Guðlaugur Þór Þórðarson er sigurvegari í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík og mun skarta oddvitasætinu. Baráttan var hörð þar sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, og Guðlaugur Þór sóttust bæði fast eftir efsta sæti listans.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, stendur efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík með 3.508 atkvæði þegar öll atkvæði hafa verið talin. Áslaug Arna var með með 4.912 atkvæði í 1. – 2. sæti.
Brynjar Níelsson féll niður í fimmta sæti frá síðustu tölum og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, er ekki meðal átta efstu í prófkjörinu.
Ávísun á leiðtogasæti
Hart var barist því flestir telja efsta sætið ávísun á leiðtogasæti í flokknum en háværar raddir hafa verið um að um Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hyggist stíga til hliðar.
Töldu margir að jafnt yrði á milli ráðherrana og að öllum líkindum myndu úrslitin ráðast af hversu vel unga kynslóðin mætti á kjörstað. Áslaug Arna mun hafa lagt sig sérstaklega fram um að ná til þess hóps og tjaldað öllu til við að fá ungt fólk til að flokksbinda sig í Sjálfstæðisflokkinn fyrir prófkjörið.
Enn meiri hiti færðist færðist í baráttunna fyrir helgi þegar framboð Guðlaugs Þórs og Diljár Mistar Einarsdóttur sökuðu bróður dómsmálaráðherra, Magnús Sigurbjörnsson, um að hafa nýtt sé aðgengi að félagskrá flokksins í kosningabaráttunni. Átti hann með því að hafa haft undir höndum nákvæmar og uppfærðar upplýsingar um flokksmenn, jafnt í aðdraganda prófkjörsins og eftir að framboðsfrestur rann út.
Grunur var því um að hann hafi nýtt sér þessar upplýsingar í þágu prófkjörsbaráttu systur sinnar.
Því var alfarið hafnaði af yfirkjörstjórn flokksins sem sagði ekkert benda til að reglur hafi verið brotnar.
Góð kosning Diljár Mistar en vonbrigði Sigríðar, Birgis og Kjartans
Augljóst var hverjir þau Áslaug Arna og Guðlaugur Þór vildu að fylgdu sér á þing. Í tilfelli Guðlaugs var aðallega nefnt nafn Diljár Mistar, aðstoðarmanns hans en fleiri virðast hafa átt samleið með Áslaugu. Voru nöfn þeirra Hildar Sverrisdóttur, Birgis Ármanssonar og Friðjóns R. Friðjónssonar hvað háværust í því samhengi.
Önnur úrslit urðu eftirfarandi:
Í þriðja sæti er Diljá Mist Einarsdóttir með 2.875 atkvæði samanlagt í 1. – 3. sæti.
Í fjórða sæti er Hildur Sverrisdóttir með 2.861 atkvæði samanlagt í 1. – 4. sæti.
Í fimmta sæti er Brynjar Níelsson með 3.311 atkvæði samanlagt í 1. – 5. sæti.
Í sjötta sæti er Birgir Ármannsson með 4.173 atkvæði samanlagt í 1. – 6. sæti.
Í sjöunda sæti er Kjartan Magnússon með 3.449 atkvæði samanlagt í 1. – 7. sæti.
Í áttunda sæti er Friðjón R. Friðjónsson með 3.148 atkvæði samanlagt í 1. – 8. sæti.
Alls greiddu 7.493 atkvæði í prófkjörinu. Gild atkvæði eru 7.208. Auð og ógild atkvæði eru 285.
Alls greiddu 7.493 atkvæði í prófkjörinu. Gild atkvæði eru 7.208. Auð og ógild atkvæði eru 285.