Nú þegar 4.857 atkvæði hafa verið talin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra með 2.333 atkvæði og hefur þar með tekið forystuna í baráttunni um oddivtasætið í Reykjavik.
Þó skilja það fá atkvæði þau að að allt gæti gerst á lokametrunum.
Litlar breytingar hafa annars orðið á listanum.
Í öðru sæti er Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra með 3.291 atkvæði í 1. – 2. sæti.
Í þriðja sæti er Diljá Mist Einarsdóttir með 1.895 atkvæði samanlagt í 1. – 3. sæti.
Í fjórða sæti er Hildur Sverrisdóttir með 1.906 atkvæði samanlagt í 1. – 4. sæti.
Í fimmta sæti er Birgir Ármannsson með 2.326 atkvæði samanlagt í 1. – 5. sæti.
Í sjötta sæti er Brynjar Níelsson með 2.605 atkvæði samanlagt í 1. – 6. sæti.
Í sjöunda sæti er Kjartan Magnússon með 2.308 atkvæði samanlagt í 1. – 7. sæti.
Í áttunda sæti er Sigríður Á. Andersen með 2.120 atkvæði samanlagt í 1. – 8. sæti.