Einstaklingur í annarlegu ástandi fór um miðborg Reykjavíkur með gjallarhorn til að breiða út óljósan boðskap. Vegfarendur kölluðu til lögreglu sem átti orðastað við þann háværa. Hann féllst á að láta af háttsemi sinni eftir tiltal lögreglu.
Annar var með ógnandi tilburði við samborgara sína í miðbænum. Lögregla náði að róa ógnvaldinn sem lét af háttseminni.
Á öðrum stað og öðrum tíma var þjófur á ferð í verslunarmiðstöð. Hann stal snjallúri og hraðaði sér á brott og komst undan. Hann var þó svo seinheppinn að nást á eftirlitsmyndavélar og er því innan seilingar lögreglu.
Annar þjófur var á ferð í verslunarmiðstöð. Hann var staðinn að verki og gripinn af lögreglu. Auk þýfisins var hann með fíkniefni í fórum sínum.
Árekstur á mörkum Nauthólsvegar og Hringbrautar var með þeim eindæmum að báðir ökumenn eru grunaðir um að hafa verið undir áhrifum vímuefna. Einn var fluttur á slysadeild. Þess utan var nokkur fjöldi ökumanna stöðvaður vegna gruns um að vera undir áhrifum.
Allt þetta og meira til kom fram í dagbók lögreglunnar.