Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er afar vinsæl í embætti og heldur vel utan um ríkisstjórnina. En hefur þann þunga kross að bera að samstarfsflokkar hennar krosssviku stjórnarsáttmálann og heilögustu mál VG. Engar lýðræðislegar breytingar verða á stjórnarskránni vegna andstöðu sjálfstæðismanna sem standa dyggan vörð um einkaeign útgerðarmanna á fiskistofnum sem áður voru í þjóðareign. Annað hjartans mál VG er hálendisþjóðgarðurinn sem Bjarni Benediktsson og félagar hafa líka blásið út af borðinu. Þetta er þungur kross fyrir Katrínu að bera inn í kosningar. Þá er líklegt að það muni verða fyrirstaða þegar næsta stjórn verður mynduð að sáttmáli þeirrar seinustu var fótum troðinn. Það blasir við að VG hafa sætt svikum en kannski er flokkurinn kominn það langt inn að miðju að félagarnir sætti sig við það …