Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði kæru Ólafs Ólafssonar frá dómi, en hann kærði íslenska ríkið fyrir brot gegn rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar í kjölfarið á efnahagshruninu árið 2008.
Málatilbúnaður Ólafs var á þann veg að rannsókn rannsóknarnefndar Alþingis varðandi aðkomu bankans Hauck & Aufhäuser í Þýskalandi að einkavæðingu Búnaðarbankans árið 2003 væri ígildi sakamálarannsóknar.
Mannréttindadómstóll Evrópu hafnaði málatilbúnaði Ólafs, en kæra hans var lögð fram fyrir fjórum árum í kjölfar birtingu niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar.
Þetta kemur fram á fréttamiðlinum visir.is.
Eftir þessa niðurstöðu liggur fyrir Ólafi að meta hvort hann höfði mál á hendur ríkinu fyrir íslenskum dómstólum vegna framgöngu Rannsóknarnefndar Alþingis.
Ólafur segir:
„Ég mun meta þessa niðurstöðu, en áhugi minn á að reka mál fyrir íslenskum dómstólum er lítill að fenginni reynslu og tímanum sjálfsagt betur varið til uppbyggilegri mála.“