Enn hefur ekkert spurst til manns sem hvarf á gosstöðvunum í gær. Leitað hefur verið að honum í nótt en án árangurs. Maðurinn, sem er um sextugt, hélt á gosstöðvarnar við Fagradalsfjall ásamt eiginkonu sinni í gær. Hjónin, sem eru erlendir ferðamenn, urðu viðskila um miðjan dag, skammt frá Stóra Hrúti. Þá hófst leit að honum sem stendur enn. Um 60 manns leituðu í morgun. Aðstæður til leitar hafa verið erfiðar vegna þoku en vonast er til að þær lagist í dag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið við leit ásamt því að drónar hafa verið notaðir. Maðurinn er vel búinn.