- Auglýsing -
„Þvílíkar gleðifréttir kæru vinir.“ Svo hefst tilkynning sem Lögreglan á Suðurnesjum var að senda út.
„Maðurinn sem leitað hefur verið að síðan í gær fannst rétt í þessu heill á húfi.
Hann er aðeins hruflaður og meiddur og er verið að flytja hann til skoðunar á sjúkrahús.
Eigið góðan og fallegan dag kæru landsmenn“.
Estill fannst um fjóra kílómetra norðvestur af gosstöðvunum og hafði gengið í þveröfuga átt að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landsbjörg.
Hann var nokkuð hress en þó lerkaður og fær nú mat og drykk hjá björgunarsveitarfólki og flýgur þyrla Landhelgisgæslunnar með manninn til byggða þar sem nokkur vegalengd er að næsta bíl björgunarsveitarinnar.
Verður hann fluttur til skoðunar á sjúkrahús.