Geðlæknirinn og sérfræðingurinn í streitu og kulnun, Ólafur Þór Ævarsson, segist hitta allt að þrjá lækna á viku í sínu starfi sem eru orðnir óvinnufærir vegna alltof mikillar streitu. Hann nefnir að læknarnir geti ekki tekið sér veikindaleyfi vegna mönnunarvandamála á spítölum landsins; þeir geta ekki hvílt sig til að ná bata.
Ólafur hefur rannsakað álag í læknastéttinni og nefnir að niðurstöður hennar hafi komið honum á óvart; vegna þess hve hátt hlutfall af læknum sé undir alltof miklu álagi; sumir læknar séu komnir í sjúklegt streituástand.
Niðurstöður könnunar Ólafs gáfu til kynna að mun fleiri starfandi læknar upplifðu rosalega streitu; mun meiri en Ólafur hélt áður en rannsóknin hófst og segir hann að „ég hafði áhyggjur af því þegar rannsóknin var kynnt hvort þetta gæti verið rétt.“
Og bætir við:
„Niðurstöðurnar voru áhyggjuefni. Allt að tveir þriðju hlutum lækna eru undir ofurálagi og lítið má út af bregða til þess að þeir finni fyrir skerðingu á starfsgetu,“ segir Ólafur, en öllum íslenskum læknum var boðin þátttaka í könnun hans; meirihluti þeirra þáði boðið.
Ásamt rannsóknarstörfum hittir Ólafur lækna sem hafa upplifað mikla streitu og kulnun, í þeim tilgangi að hjálpa þeim að ná tökum á henni og ná bata.
„Ég er að hitta tvo til þrjá lækna á besta aldri á viku sem eru í raun og veru orðnir óvinnufærir af álagi. Þeir eru komnir með meira en kulnun; komnir í ástand sjúklegrar streitu.“
Fram kemur í niðurstöðum rannsóknar Ólafs að helmingur af læknunum sem tóku þátt hafa hugleitt alvarlega að hætta að stunda læknisfræði.
Heimild: Stundin