Athafnamaðurinn, Álftnesingurinn og fótboltakappinn Guðjón Pétur Lýðsson er ekki bara að gera það gott inni á vellinum; utan vallar stendur hann í ströngu við að byggja upp fasteignaveldi sitt.
Guðjón Pétur er reyndur og öflugur leikmaður sem hefur komið víða við; reyndi meðal annars fyrir sér í atvinnumennsku í Svíþjóð með góðum árangri – varð sænskur deildar- og bikarmeistari með Helsingborg. Þá varð hann Íslandsmeistari með Val árið 2017. Í dag leikur Guðjón Pétur með ÍBV í næstefstu deild og er þessi skapmikli, drífandi og ákveðni leikmaður að gera góða hluti.
Hann segir meðal annars í samtali við Eyjafréttir að „lífið er yndislegt í Vestmannaeyjum,“ og verði fullkomnað þegar fjölskyldan hans verði komin með fasta viðveru þar. Guðjón á tvo syni; sá þriðji á leiðinni.
„Ég hlakka til að leyfa þeim að upplifa eyjuna og ætla að vera duglegur að fara á kajak og labba út um allt og skoða. Finnst eins og ég sé kominn á leynistað – enda fegurðin á eyjunni mögnuð“ segir Guðjón Pétur sem er nýr eigandi annarrar og þriðju hæðarinnar í Landsbankahúsinu við Bárustíg.
Segir fótboltamaðurinn og fasteignakaupandinn „að til standi að gera íbúð á þriðju hæðinni en Vestmannaeyjabær muni leigja aðra hæðina svo lengi sem þörf er á, eða þangað til að framkvæmdum lýkur við Ráðhúsið.“
Guðjón Pétur er æ meira að gera sig gildandi á fasteignamarkaðnum eftir því sem styttist í annan endann á fótboltaferlinu. Hann er þekktur fyrir gott auga fyrir góðri fasteign á markaðnum og til að mynda keypti Guðjón Pétur húsnæði á Akureyri þann örstutta tíma sem hann var leikmaður KA árið 2018.
Í dag er það svo að á mjög stuttum tíma í Vestmannaeyjum hefur Guðjón Pétur leikið átta leiki með ÍBV í næstefstu deild í sumar, skorað í þeim þrjú mörk og keypt tvær hæðir.
Guðjón Pétur er fjölhæfur maður; starfaði sem húsvörður í Urriðaholtsskóla og byggir hús eins og ekkert sé. Á sínum tíma, þegar hann lék með Stjörnunni, tók hann sæti í Íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar og Guðjón hefur verið viðloðandi pólitík fyrir Garðabæjarlistann; var í sjötta sæti listans í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ af íþróttabraut og útskrifaðist einnig af húsasmíðabraut frá Iðnskólanum í Reykjavík.
Á tímabili vann Guðjón Pétur hjá Sportmönnum ehf. sem rekur Adidas-umboðið á Íslandi, og í framhaldi af því byrjaði hann að gera upp íbúðir. Þá stofnaði hann Gpl slf. sem í dag er fasteignafélag sem leigir út íbúðir. Guðjón er einnig einn af eigendum North Investment ehf. sem starfrækir fjórtán skrifstofurými til útleigu til minni fyrirtækja og einstaklinga.
Guðjón Pétur Lýðsson er því búinn að gera sig gildandi á fasteignamarkaðinum; byggir hratt og örugglega upp fasteignaveldi sitt og skorar í leiðinni nokkur mörk.