Kristinn er alls annað en sáttur við svo kallaða tax – free daga sem standa yfir hjá Hagkaup um þessar mundir. „Tax Free dagar Hagkaup…góð kaup? Leyfmjéraðhuxa..Nei. Tigi hárgel kr.2.499–484(tax free)=2.015..Krónan kr.1.825 (án afsláttar)“ segir Kristinn með færslu sinni inn á Facebook hópnum Vertu á verði – Eftirlit með verðlagi. Verðlagseftirlit ASÍ er eigandi þessa hóps og hvetur alla neytendur til þess að segja frá inn á hópnum, ef þeir verði varið við eitthvað misjafnt er varðar verðlag.
Hárgelið er því þrátt fyrir tax – free afslátt 10 prósent dýrara hjá Hagkaup en hjá Krónunni sem ekki bíður neinn afslátt á gelinu. Það er nú málið að afsláttur þarf ekki að þýða að um lægsta mögulega verð sé að ræða. Við hér á Íslandi lifum við mjög óheilbrigt verðlag og búðir leika sér að vöruverði og þar með neytendum. Það að neytendur séu vakandi yfir verðlagi og ósamræmi á því, getur verið ákaflega áhrifaríkt og bráðnauðsynlegt.