Sunna Karen Sigurþórsdóttir, fréttamaður á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni sagði frá því í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun að henni hafi heldur betur brugðið í brún er hún hugðist kaupa sér flugmiða til Egilsstaða.
Sunna ætlaði að kaupa tvo miða og var gangverðið á hverjum miða 47.500 krónur. Því hefðu farmiðarnir tveir til Egilsstaða kostað hana um 95.000 krónur sem verður að teljast ótrúlega hátt verð fyrir ekki lengra flug. „Það væri ódýrara að kaupa flug til Marokkó“. Það er ekkert nýtt að verðlag á innanlandsflugi sé verðlagt ákaflega hátt og hefur það verið gagnrýnt í fjölda ára.
Flugtíminn til Egilsstaða er einungis ein klukkustund svo hver einstaklingur væri að greiða 792 krónur á hverja mínútu í loftinu.