- Auglýsing -
Hljómsveitin ADHD, sem hefur nú starfað í ellefu ár, gaf á dögunum út sína sjöundu plötu og mun af því tilefni halda útgáfutónleika í Hörpu í kvöld, 24. maí.
Platan ADHD 7 kom út í mars og hefur hlotið lof bæði gagnrýnanda og áheyrenda, en hljómsveitin hefur undanfarið verið á tónleikaferðalagi um Evrópu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Hægt er að nálgast miða á harpa.is og tix.is.