- Auglýsing -
Vegna fjölda áskorana hefur Margrét Erla Maack ákveðið að kenna fjögurra vikna Beyoncé-námskeið sem ætlað er körlum.
Námskeiðið hentar þeim sem aldrei hafa dansað áður og þeim sem vilja auka liðleika, líkams- og rýmisvitund, fíflast duglega einu sinni í viku í nokkuð vernduðu umhverfi, eiga góð múv á dansgólfinu og að sjálfsögðu læra að twerka! Nánari upplýsingar og skráning er á Kramhusid.is.