Rapp hefur sem kunnugt er notið mikilla vinsælda undanfarin ár en skiptar skoðanir eru á því hvort það muni áfram njóta sömu vinsælda.
Þannig telja erlendir tónlistarmiðlar eins og Kerrang, Dj booth og 24k.mag að almenningur sé orðinn leiður á þessari tegund tónlistar og er það ekki í fyrsta sinn sem henni er spáð dvínandi vinsældum en í árdaga rappsins spáðu t.d. sumir því að það yrði alls ekki langlíft. Aðrir telja að þvert á þessar spár muni rappið ekki missa vinsældir.
Þrátt fyrir að ákveðin lægð kunni að hafa einkennt það undanfarið muni það aftur sækja í sig veðrið.
Albumm aðhyllist frekar þá skoðun og bíður spennt eftir að sjá hvað nýtt tónlistarár ber í skauti sér.