- Auglýsing -
Royal Gíslason var að senda frá sér lagið Kóróna Cola, fyrsta íslenska lagið sem hann sendir frá sér í þónokkur ár.
Lagið er virkilega ferskt en takturinn er unninn af Irnee Zargelas sem er pródúser frá New York. „Lagið er partur af verkefni sem ég kalla Skapsveiflur, samansafn af lögum eftir mig sem eru á íslensku.“
Kappinn vinnur nú hörðum höndum að nýrri plötu sem mun bera heitið Skapsveiflur II og kemur út á næstunni. Bjarki Ómarsson eða Bomarz eins og hann er iðulega kallaður sér um allar upptökur og hljóðvinnslu fyrir lagið og Skapsveiflur II.
Texti / Steinar Fjeldsted