- Auglýsing -
Tónlistarmaðurinn Hákon Aðalsteinsson var að gefa út sína fyrstu plötu, Adored. Platan er að mestu tekin upp í stúdíóinu hans og inniheldur lög þar sem mikið er notast við bassa, gítar, aðallega baritone-gítar og syntha.
Plötuna gefur hann út undir merkjum raftónlistarverkefnisins Hákons, sem hann hefur unnið að síðasta árið.
Platan er unnin í miklu samstarfi við Breka Stein Mánason, sem sá að miklu leyti um hljóðblöndun, en Kormákur Máni Hafsteinsson myndaði plötuumslagið.