- Auglýsing -
Dj Story Light og Siggi Bahama ætla að halda uppi stuðinu á Vitatorgi í dag með því að þeyta skífum og spila tónlist sem vonandi allir krakkar ættu að geta dansað við.
Karl Kristján myndlistarmaður, sem er meðal annars þekktur fyrir að hafa málað framhliðina á bakaríinu Brauð og Co. á Vitastíg, mun skapa litríkan myndgjörning. Allir fá krítar til að skreyta gangstéttina í fallegum litum og boccia-boltar verða til staðar fyrir þá sem vilja spreyta sig í boccia. Þá verða Lurkar í boði Emmessíss. Viðburðurinn hefst á morgun, laugardag, klukkan 14 og stendur yfir til klukkan 17.