- Auglýsing -
Í nýju myndbandi eru þeir Krabba Mane, Birgir Hákon og Herra Hnetusmjör dæmdir í fangelsi fyrir hljóðmengun og glæpi gegn menningu.
Krabba Mane, Birgir Hákon og Herra Hnetusmjör voru að senda frá sér nýtt lag og myndband sem ber heitið „Rútína”. Hér er á ferðinni lag sem á án efa eftir að hljóma í eyrum landsmanna á næstu misserum. Myndbandið er hreint út sagt stórkostlegt en það var Ingimar Elíasson sá um leikstjórn og handrit.
Mörg þekkt andlit sjást í myndbandinu og söguþráðurinn er ansi skemmtilegur og vel útfærður.